Aðalval
      Forsíða
 Kaldbakur
 Kallinn
 Um ferðirnar
 Hvar erum við
 Kort af Grenivík
 Verðlisti
 Fyrirtæki og stofnanir
 Tenglar
 Fréttir
 
    
Myndir
      Sumar
 Vetur
 

Kaldbaksferðir Grenivik

Ferðir á Kaldbak alla daga mánuðina janúar - maí


Ath! Lengsta skíðabrekka landsins, hæð 1174 metrar.
Útsýnið er hreint ótrúlegt

Við flytjum þig í snjótroðara upp á Kaldbak.
Síðan ferð þú niður á skíðum, bretti, gangandi eða aftur með snjótroðaranum.

Bókanir í síma 867-3770


Kaldbakur Tours

Every day January to May

Our snow cats will take you to the top of Kaldbakur, the longest ski run in Iceland, 1173 meters high, where we stop to take in the panoramic view. Passengers can then choose to ski, snowboard, walk, sled or just sit back and enjoy the ride down in the snow cat.

Kaldbakur Tours operate two snow cats, with a combined maximum capacity of 52 adults. Both are open air so it is necessary to dress warmly.

The snow cats depart from our parking area just north of Grenivík, a short 30 minutes drive from Akureyri.

Tours must be booked in advance,

For more information and
bookings please call
Kaldbakur Tours at
+354 8673770

      

Heimsóknir á síðuna
  Núna: 1
  Í dag: 33
  Í allt: 65657


  Íslenska       
 
 

Fréttir

Kaldbaksþotan

01.03.2010 16:09

Jómfrúrferðin

Jómfrúrferðin

Í gær var prufukeyrð ný snjóþota Kaldbaksferða. Bjössi hannaði þessa þotu sjálfur ásamt Guðmundi Óskarssyni hjá Promens á Dalvík og smíðaði mótið. Það er Promens sem ætlar að framleiða gripinn.
Þrátt fyrir frekar óhagstætt færi sannaði þotan ágæti sitt og hér má sjá myndir af fyrstu ferðinni.
Innan tíðar verður hægt að hefjast handa um framleiðslu á fullu.
Tilkynnt verður hér á síðunni þegar þotan, sem heitir Kaldbakur, verður sett á almennan markað.

Meira...

Við erum komin af stað

18.01.2010 09:02


Fyrsta ferð vetrarins var farin 15. janúar og önnur næsta dag á eftir.
Byrjunin lofar góðu um framhaldið. Færið er gott en mætti alveg vera meiri snjór. Jólasnjórinn er allur horfinn en undirlagið er þétt og gott og allt slétt og lokað.
Brottför er frá neðsta plani.

Meira...

23.12.2009 23:43


Kaldbaksferðir
senda ferðafélögum frá síðasta vetri og lands-mönnum öllum sínar bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsæld á nýju ári.

Meira...

Gjafabréf í jólagjöf?

05.12.2009 19:31

Norðurhliðin á honum

Norðurhliðin á honum

Kaldbakur er þarna enn, brattur eins og fyrri daginn og löðrandi í snjó sem lofar góðu. Allt bendir til að verði hægt að fara á hann í janúar/febrúar.

Sími Kaldbaksferða, 867 3770, hefur verið óvirkur um skeið vegna einhvers kerfisgalla. Það er ekkert undarlegt þótt hann þegi dögum saman um þetta leyti árs og þess vegna varaði sig enginn á þessu.
En nú á allt að vera komið í lag.
Ef sama bilun kemur upp aftur má hringja í 863 3172.

Oft er vandi að velja jólagjöf handa þeim sem eiga „allt“.
Gjafabréf Kaldbaksferða geta leyst þann vanda með hægu móti.

Meira...