 |
| |
Aðalval
|
| |
Forsíða
Kaldbakur
Kallinn
Um ferðirnar
Hvar erum við
Kort af Grenivík
Verðlisti
Fyrirtæki og stofnanir
Tenglar
Fréttir |
| |
| |
Myndir
|
| |
|
| |
Kaldbaksferðir Grenivik
Ferðir á Kaldbak alla daga mánuðina janúar - maí
Ath! Lengsta skíðabrekka landsins, hæð 1174 metrar.
Útsýnið er hreint ótrúlegt
Við flytjum þig í snjótroðara upp á Kaldbak.
Síðan ferð þú niður á skíðum, bretti, gangandi eða aftur með snjótroðaranum.
Bókanir í síma 867-3770
Kaldbakur Tours
Every day January to May
Our snow cats will take you to the top of Kaldbakur, the longest ski
run in Iceland, 1173 meters high, where we stop to take in the panoramic
view. Passengers can then choose to ski, snowboard, walk, sled or just
sit back and enjoy the ride down in the snow cat.
Kaldbakur Tours operate two snow cats, with a combined maximum capacity
of 52 adults. Both are open air so it is necessary to dress warmly.
The snow cats depart from our parking area just north of Grenivík,
a short 30 minutes drive from Akureyri.
Tours must be booked in advance,
For more information and bookings please call
Kaldbakur Tours at
+354 8673770
|
| |
|
 |
|
Heimsóknir á síðuna
Núna: 1
Í dag: 7
Í allt: 72947
|
|
|
| |
Íslenska |
|
| |
Kaldbakur
Helstu staðreyndir um Kaldbak.
Kaldbakur er 1,173 m hár og er hæstur tinda við norðanverðan Eyjafjörð, með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Gönguferð upp á fjallið tekur um þrjár klukkustundir. Í vestanverðum toppi fjallsins er jökulskál og þar er snjór og ís allt árið um kring. |
Á kolli Kaldbaks ber hæst vörðu sem hlaðin var af dönsku herforingjastjórninni árið 1914, en það er talinn vísir fyrstu landmælinga á Íslandi.
|
Veðurviti
Látra-Björg kvað um svikul og tvíráð veðrateikn á tindi Kaldbaks:
Vestanblika
kúfnum kalda
Kaldbak hleður;
sunnan kvika,
utanalda,
austan veður.
Fjall Eyjafjarðar
Árið 2002 var alþjóðlegt ár fjalla. Þá var Herðubreið kosin þjóðarfjall Íslendinga og Kaldbakur sigraði í keppninni um fjall Eyjafjarðar eftir harða samkeppni við Kerlingu og Súlur.
Upphaf á kaflanum Blikavatn í bókinni Úr hugskoti eftir Hannes Pétursson. (Iðunn, Reykjavík 1976)
Út með Eyjafirði austanverðum liggur stór hvítabjörn fram á lappir sínar. Hann er úr grjóti og hryggur hans gnæfir í tæplega 1200 metra hæð yfir sjó. Einhver nefndi dýrið Kaldbak fyrir löngu. Kaldbakur tekur á sig hregg og svalvinda norðanáttar, og þess sér stað: túnin eru sæl með sig í Eyjafirði og lognið verður rjómaþykkt á innfirðinum. Í öllu logninu og veðurblíðunni heyrast hinir rödduðu samhljóðar í máli fólksins skýrar en annars væri!
Apríldagur við Eyjafjörð
Nú fagnar landið hlýrri austanátt
og ærslast ljósir kettlingar á víði
en vetrarblómið, vorsins helsta prýði,
það viðrar sig á melnum, ósköp smátt.
Og sóley veit að sumar kemur brátt
í sverðinum þótt rætur hennar bíði
og heiðlóan sem hretin suður flýði
í haust er leið, að nýju syngur dátt.
En Kaldbakur með koll í skýjum hátt
er kleifur þótt á efstu brúnir hríði.
Af íbúum þar efra segir fátt.
Á beði sem er urðargrjótið grátt
á gamall refur nú í dauðastríði
og fjallið heyrir feigan andardrátt.
Davíð Hjálmar Haraldsson
Úr fórum Davíðs frá Fagraskógi
Það er þakkargerð mín á hverjum morgni að líta út yfir fjörðinn. Kaldbakur hefur alltaf verið mitt heilaga fjall, fjörðurinn mitt hálfa líf. Ég hef oft óskað þess, að allt mannkyn mætti sjá fegurð Eyjafjarðar, þegar hún er mest á vorin. Það er trú mín, að þá væri friður á jörð, menn auðugri af kærleika, og engin helsprengja til í veröldinni.
(Mælt mál bls. 132. Helgafell 1963)
Fegurð
Ég held að sólsetur við Kaldbak sé það fegursta sem ég hef séð frá Akureyri.
Ég sofnaði frá þessari fegurð kvöld efir kvöld í júnímánuði ár hvert.
Hannes J. Magnússon: (Öldufall áranna, bls. 133. Æskan 1968.)
Hliðskjálf Norðlendinga
Skammt frá Grenivík er fjallið Kaldbakur, það er hátt á fjórða þúsund fet á hæð, það gengur nálega í sjó fram og speglaðist í sænum, hrikalegt og tilkomumikið. Þegar Norðlendingar óttast ís, - hann er þeirra versti óvinur, - þá ganga þeir upp á Kaldbak til þess að skyggnast um eftir fjanda þeim, og óska honum norður og niður ef að eygist.
Má svo að orði kveða að af Kaldbak sjáist yfir heim allan, þar er nokkurs konar Hliðskjálf þeirra Norðlendinga; þaðan sést yfir allan Skjálfanda, og afar langt á sæ út; Herðubreið, sem er suður undir Vatnajökli, öll Mývatnsfjöll, Eyjafjörður allur, Hnjóskadalur, Bárðardalur, Hörgárdalur og Svarfaðardalur o.s.frv. þaðan sést austur á Sléttu og vestur undir Horn.
Sig. Júl. Jóhannesson. (Ferðapistlar VIII. Dagskrá 26. nóv. 1898.)
|
Prentvæn útgáfa
|
|
 |
|
|
|