Ævintýraferð á Kaldbak

Ferðir á Kaldbak alla daga mánuðina
FEBRÚAR – MAÍ

Við flytjum þig í snjótroðara upp á Kaldbak.
Síðan ferð þú niður á skíðum, bretti, snjóþotu, gangandi eða aftur með snjótroðaranum.

ATH! Þetta er lengsta skíðabrekka landsins, hæð 1173 metrar.
Útsýnið er hreint ótrúlegt
!

FASTAR FERÐIR

Fastar ferðir eru upp á Kaldbak á tímabilinu frá 1. janúar fram á vor.

Farnar eru 3 ferðir á dag, kl. 10, kl. 13 og kl. 16. Lágmaksfjöldi í ferð eru 10 fullorðnir.
Ferðin upp á Kaldbak tekur um 45 mínútur. Uppi á toppnum er stoppað í um 15 mínútur og gefst þá góður tími til að njóta útsýnisins. Bílstjórar eru ólatir við að fræða farþega um það sem fyrir augun ber. Einnig er góður siður að skrifa nafn sitt í gestabókina
Bíllinn fer sömu leið niður og geta farþegarnir valið annað hvort að fara með honum aftur eða renna sér niður brekkurnar á skíðum, sleðum eða snjóþotum. Hægt er að fá lánaða snjóþotu ef ævintýraþráin tekur völdin.
SÉRSNIÐNAR FERÐIR

Stór þáttur í starfsemi Kaldbaksferða eru stakar ferðir samkvæmt óskum viðskiptavina. Vinsælt er að fara með starfsmannahópa í útsýnis og skemmtiferðir. Margir nota tækifærið og taka skíðin með, enda eru brekkur við allra hæfi. Einnig hefur brettafólk séð spennandi tækifæri í að nýta sér þjónustu Kaldbaksferða. Þessar ferðir þarf að skipuleggja í tíma þar sem oft er fullbókað í fastar ferðir með bílunum.
UM FERÐIRNAR

Kaldbaksferðir eiga tvo snjótroðara sem eru útbúnir með opnu farþegarými. Bílarnir taka 32 farþega hvor.

Nauðsynlegt er að panta fyrirfram í ferðir í síma 867-3770.
Lagt er af stað frá aðstöðuplani rétt norðan við þorpið Grenivík.
Bílarnir sem notaðir eru til ferðanna upp á Kaldbak eru með opnu farþegarými. Nauðsynlegt er að klæða sig í samræmi við það.